Viðskipti
| AFP
| 6.9.2011
| 11:10
| Uppfært
7.9.2011
13:03
Lækkun í New York en hækkun í Lundúnum
Verð á hráolíu fór niður fyrir 85 Bandaríkjadali tunnan á markaði í New York í morgun en það er einkum ótti fjárfesta um mögulega efnahagslægð sem hefði mikil áhrif á eftirspurn eftir olíu. Hins vegar hækkaði verð á Brent Norðursjávarolíu á markaði í Lundúnum.
Í New York lækkaði verð á hráolíu til afhendingar í október um 1,89 dali og er 84,56 dalir tunnan.
Í Lundúnum hækkaði verð á Brent Norðursjávarolíu um 84 sent og er 110,92 dalir tunnan.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















