Vaxtakjör Landsvirkjunar betri en ríkisins
Landsvirkjun hefur á skömmum tíma gefið út skuldabréf í Bandaríkjadölum og bendir Greining Íslandsbanka á að vaxtakjör Landsvirkjunar séu betri en þau sem ríkissjóður Íslands nýtur. Alls nemur útgáfan 133,2 milljónum Bandaríkjadala, sem jafngildir rúmum 15 milljörðum króna.
„Að því gefnu að 10 ára útgáfan hafi verið seld á pari, og að ávöxtunarkrafa þeirrar útgáfu sé 4,9% líkt og nafnvextirnir, má álykta sem svo að fyrirtækið njóti hagstæðari kjara en ríkissjóður, hvort sem miðað er við dollara eða krónur.
Til að mynda var krafa 5 ára dollarabréfs ríkissjóðs 5,2% í ágústlok og er hún 5,24% í dag. Í krónum hefur sambærileg fjármögnun ríkissjóðs verið á bilinu 6,5% - 7,7% undanfarna viku. Kjör Landsvirkjunar eru því ívið hagstæðari en líkleg kjör ríkissjóðs í dollurum mælt, og mun hagstæðari en þau kjör sem ríkissjóður nýtur í krónum þessa dagana.
Ekki er gott að ráða í ástæður þessa, en þó má benda á að sjóðstreymi Landsvirkjunar er að langmestu leyti í erlendri mynt, þar sem bróðurpartur teknanna er í dollurum og skuldir að mestu leyti í dollurum (39%) og evrum (41%). Lausafjárstaða fyrirtækisins er að auki nokkuð rúm og sjóðstreymi jákvætt, og LV ætti því að vera sjálfri sér nóg hvað gjaldeyri varðar næstu misserin," segir í Morgunkorni Íslandsbanka.



















