Viðskipti
| mbl
| 7.9.2011
| 14:45
| Uppfært
18:41
Wall Street hefur áhrif á Evrópu
Allar helstu hlutabréfavísitölur Evrópu hafa hækkað síðdegis í kjölfar hækkunar við upphaf viðskipta á Wall Street í dag. Meðal annars hefur DAX-vísitalan í Frankfurt hækkað um 3,84%. Grísk hlutabréf hækkuðu um tæp 8% í dag.
Í Lundúnum hefur FTSE-vísitalan hækkað um 2,79 og CAC í París um 3,22%. Í Madríd hafa hlutabréf hækkað um 1,83% og 3,51% í Mílanó.
Á Wall Street hefur Dow Jones-vísitalan hækkað um 1,37%, S&P um 1,59% og Nasdaq um 1,7%.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















