Viðskipti
| mbl
| 8.9.2011
| 9:02
| Uppfært
19.12.2011
20:50
8,2 milljarða afgangur
Útflutningur í ágúst nam 55,5 milljörðum króna og innflutningur 47,3 milljörðum. Vöruskiptin í ágúst, reiknuð á fob-verðmæti, voru því hagstæð um 8,2 milljarða króna samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar.
Fyrstu átta mánuði ársins nemur afgangur af vöruskiptum 62,2 milljörðum króna en á sama tímabili í fyrra var afgangurinn 77,5 milljarðar króna á gengi þess árs.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















