Viðskipti
| AFP
| 9.9.2011
| 15:54
| Uppfært
19:22
Hrun á mörkuðum
Allar helstu hlutabréfavísitölur beggja vegna Atlantsála hafa lækkað mikið í dag. Í Þýskalandi lækkaði DAX vísitalan um 4% og í Mílanó nemur lækkunin tæpum fimm prósentum.
Í París lækkaði CAC vísitalan um 3,6%, Madríd lækkaði um 4,44% og FTSE vísitalan lækkaði um 2,35% í Lundúnum.
Í Bandaríkjunum hefur Dow Jones vísitalan lækkað um 2,5%, S&P 500 um 2,4% og Nasdaq um 2%.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















