Sparisjóður auglýstur til sölu
Neskaupstaður. www.mats.is
HF Verðbréf hafa auglýst allt stofnfé Sparisjóðs Norðfjarðar til sölu. Söluferlið, sem hefst á fimmtudag, er aðeins opið fjárfestum sem uppfylla hæfnisskilyrði laga um verðbréfaviðskipti.
Sparisjóður Norðfjarðar hefur verið starfræktur í yfir 90 ár. Aðalafgreiðsla og skrifstofa sjóðsins er í Neskaupstað en auk þess er rekin afgreiðsla á Reyðarfirði. Starfsmenn sparisjóðsins eru nú tíu.
Fram kemur í tilkynningu, að rekstur Sparisjóðs Norðfjarðar hafi alla tíð gengið vel að undanskildu fjárhagslegu tjóni sem sparisjóðurinn varð fyrir samhliða áföllum í íslensku bankakerfi haustið 2008.
Á árunum 2009-2010 var fjárhagur sparisjóðsins endurskipulagður með aðkomu ríkisins, Fjarðabyggðar, fyrirtækja og einstaklinga í Fjarðabyggð. Eftir endurskipulagninguna er stofnfé sparisjóðsins 625,8 milljónir og stofnfjáreigendur eru 86. Bankasýsla ríkisins fer með hlut ríkissjóðs í sparisjóðnum og nemur hann 49,5% af stofnfé sjóðsins.
Heildareignir sparisjóðsins voru í lok árs 2010 um 5223 milljónir króna og eiginfjárhlutfall hans var 20,3%.



















