Viðskipti
| mbl
| 12.9.2011
| 12:48
| Uppfært
19:19
Upplýsingar um eignarhald ljósar
Björgólfur Thor Björgólfsson. mbl.is/Árni Sæberg
Björgólfur Thor Björgólfsson segir á vef sínum að Ólafur Kristinsson lögmaður virðist byggja áform um hópmálsókn á þeirri trú að ekki hafi verið réttilega upplýst um eignarhlut samstarfsmanna Björgólfs í Samson eignarhaldsfélaginu sem fór með ríflega 40% eignarhlut í Landsbankanum.
Björgólfur segir að bæði Fjármálaeftirlitinu og regluverði Landsbankans hafi verið kunnugt um það eignarhald. Fullyrðingar um annað byggist ekki á neinum gögnum.
Ólafur birti auglýsingu í blöðum í dag þar sem kemur fram að fyrrum hluthafar í Landsbankanum vinni að því að höfða svonefnt vitnamál gegn Björgólfi Thor. Hvetur hann aðra fyrrum hluthafa til að leggja málinu lið.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















