Adoboli og Tchenguiz hjá sömu lögmannsstofu
Verðbréfamiðlarinn Kweku Adoboli, sem var handtekinn í gær grunaður um óheimil viðskipti hjá svissneska bankanum UBS, hefur fengið lögmannsstofuna Kingsley Napley til að verja sig en stofan er verjandi Vincents Tchenguiz í rannsókn Serious Fraud Office (SFO) á lánveitingum Kaupþings.
Talskona Kingsley Napley staðfestir þetta í samtali við Bloomberg-fréttastofuna í dag. Adoboli, 31 árs, var yfirmaður deildar sem annast viðskipti á skipulegum verðbréfamarkaði í Evrópu. Hann er enn yfirheyrður vegna málsins og er í haldi lögreglu í Lundúnum.
Meðal annarra viðskiptavina lögmannsstofunnar er Nick Leeson, verðbréfamiðlarinn sem gerði Barings-banka gjaldþrota árið 1995.
Lögmannsstofan Kingsley Napley var stofnuð árið 1937 en hún er einnig að vinna fyrir Rebekah Brooks, fyrrv. forstjóra News International, dótturfélags News Corp. í símahlerunarmáli News of the World sem nú er til rannsóknar í Bretlandi.
Talskona Kingsley Napley, Louise Beeson, segist ekki geta tjáð sig nánar um mál Adobolis. Lögregla hefur ákært hann fyrir fjársvik og bókhaldsbrot og verður hann leiddur fyrir dómara síðar í dag.
Adoboli játaði hins vegar fyrir áhættustýringu UBS, þegar rannsókn hófst á málinu, að hafa gerst sekur um óheimil viðskipti.
Leeson var dæmdur í tíu mánaða fangelsi fyrir brot sín. Hvorki Brooks né Tchenguiz hafa verið ákærð fyrir glæpsamlegt athæfi.
En auk þeirra starfaði lögmannsstofan einnig fyrir Augusto Pinochet, fyrrverandi einræðisherra í Síle.




















