Viðskipti
| mbl
| 19.9.2011
| 19:22
| Uppfært
21:37
Apple verðmætasta fyrirtækið
Gengi hlutabréfa bandaríska tölvuframleiðandans Apple hefur hækkað í viðskiptum í dag og komst í 411,50 dali fyrr í dag; hafði þá aldrei í sögunni verið hærra. Er Apple nú verðmætasta fyrirtækið á bandarískum hlutabréfamarkaði og hefur skotið olíufélaginu Exxon Mobil ref fyrir rass.
Markaðsvirði Apple komst hæst í dag í 381,4 milljarða dala, 44.666 milljarða króna, en lækkaði lítillega aftur. Markaðsvirði Exxon var á sama tíma 356,6 milljarðar dala.
Bréf Apple hafa hækkað jafnt og þétt að undanförnu en fjárfestar settu það ekki fyrir sig að Steve Jobs sagði af sér sem forstjóri fyrirtækisins í ágúst af heilsufarsástæðum og Tim Cook tók við. Jobs tók jafnframt við starfi stjórnarformanns.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















