Viðskipti
| mbl
| 19.9.2011
| 17:04
| Uppfært
17:24
Dýrt að dvelja í París
Meðalverð fyrir gistingu á tveggja manna hótelherbergi í París er nú 204 evrur nóttin, 32.600 krónur, að sögn vefjarins Trivago, sem ber saman verð á hótelherbergjum víða um heim.
Þetta þýðir að gisting í París er orðin dýrari en í Lundúnum en samkvæmt nýjustu útreikningum Trivago er meðalverðið í Lundúnum 200 evrur.
Ástæðan fyrir því að verð á gistingu hefur hækkað í París er einkum sú, að kaupsýslumenn eiga þangað nú erindi á nýjan leik.
Þessar borgir tvær eru þó langt frá Genf þar sem gisting á tveggja manna hótelherbergi kostar að meðaltali 298 evrur á nóttu, 47.700 krónur.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















