Viðskipti
| AFP
| 19.9.2011
| 15:54
| Uppfært
16:21
Société Generale lækkar um 6,70%
Hlutabréf franska bankans Société Generale lækkuðu um 6,70% í kauphöllinni í París í dag en CAC-hlutabréfavísitalan lækkaði um 3%.
Í Frankfurt lækkaði DAX-vísitalan um 2,83% og í Lundúnum lækkaði FTSE-vísitalan um 2,03%. Í Mílanó nam lækkunin 3,17% og í Madríd 1,98%.
Í New York hefur þróunin verið á svipaða leið en Dow Jones-vísitalan hefur lækkað um 1,83%. Hlutabréf Alcoa hafa lækkað mest eða um 3,84%. S&P 500 hefur lækkað um 1,79% og Nasdaq um 1,11%.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















