Viðskipti
| AFP
| 20.9.2011
| 7:13
| Uppfært
9:47
Bankar falla í verði
Hlutabréf frönsku bankanna BNP Paribas og Société Generale lækkuðu mikið er viðskipti hófust í evrópskum kauphöllum klukkan 7 í morgun. BNP Paribas lækkaði um 3% og Société Generale um 4%. Ítalska hlutabréfavísitalan lækkaði einnig mikið í fyrstu viðskiptum morgunsins.
Er lækkunin ekki síst rakin til ákvörðunar alþjóðlega matsfyrirtækisins Standard & Poor í gær um að lækka lánshæfismat ítalska ríkisins úr A+/A-1+ í A/A-1 vegna veikleika í ríkisfjármálum, efnahagslífi og stjórnmálum en einnig vaxandi áhyggja af stöðu evrópskra banka.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















