Landsbankinn gerir samning við lánatryggingasjóð kvenna

Gengið var formlega frá samkomulaginu í dag. stækka

Gengið var formlega frá samkomulaginu í dag.


Landsbankinn hefur skrifað undir samstarfssamning við Svanna - lánatryggingasjóð kvenna, um að bankinn veiti konum í atvinnurekstri lán sem sjóðurinn og bankinn ábyrgjast sameiginlega.  Landsbankinn veitir helming ábyrgðar á móti sjóðnum og tryggir þannig konum í nýrri starfsemi rýmri aðgang að fjármagni en ella og eykur möguleika þeirra til að stofna fyrirtæki. Samstarfssamningurinn er liður Landsbankans í að efla atvinnulíf og hvetja til nýsköpunar í landinu.


Lánatryggingasjóður kvenna var stofnaður árið 1997 sem tilraunaverkefni félagsmálaráðuneytis, iðnaðar- og viðskiptaráðuneytis og Reykjavíkurborgar til þriggja ára. Hann var endurvakinn hinn 8. mars síðastliðinn og er nú í eigu velferðarráðuneytis, iðnaðar-ráðuneytis og Reykjavíkurborgar og eru stjórnarmenn þau Steinunn Valdís Óskarsdóttir, Sigrún Elsa Smáradóttir og Jón Steindór Valdimarsson.
Svanni - lánatryggingasjóður kvenna tekur formlega til starfa í dag,  23. september,  og verður hægt að sækja um lánatryggingar á vefsíðu sjóðsins, svanni.is. Hlutverk hans er að styðja konur til þátttöku og nýsköpunar í atvinnulífinu með því að gangast í ábyrgð fyrir hluta af lánum þeirra.


Tilgangur og markmið samstarfs Landsbankans og lánatryggingasjóðsins er að styðja við bakið á konum sem eiga og reka smærri fyrirtæki, að auka aðgengi kvenna að fjármagni, að fjölga störfum og stuðla að nýnæmi í atvinnulífi. Lántaki er skuldbundinn sjóðnum að fá ráðgjöf um útfærslu hugmyndar sinnar og ennfremur skal lántaki skila skýrslu vegna verkefnis eða ársskýrslu fyrirtækis hvert ár sem tryggingin er í gildi.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Viðskipti »

Heimsmarkaðsverð á olíu heldur áfram að hækka

Olíuverð heldur áfram að hækka

21:31 Heimsmarkaðsverð á olíu hélt áfram að hækka í dag og hefur ekki verið hærra í níu mánuði.  Meira »

Skuldakreppan á borð G20

19:54 Fjármálaráðherrar G-20 ríkjanna (20 helstu iðnríkja heims) og seðlabankastjórar munu koma saman á fundi í Mexíkóborg um helgina og ræða skuldakreppuna á evrusvæðinu. Meira »

Rúmlega 400 missa vinnuna

21:07 Flugfélagið Air New Zealand ætlar að segja upp ríflega 400 starfsmönnum fyrir lok rekstrarársins. Á fyrstu sex mánuðum þess dróst hagnaður Air New Zealand saman um 61,2% frá sama tímabili árið á undan. Meira »

Skapar 20.600 störf

18:48 Efnahagslegur ábati af flugtengdri starfsemi á Íslandi er margháttaður. Þannig skapar atvinnugreinin alls um 20.600 störf og þjóðhagsleg áhrif á verga landsframleiðslu eru kringum 12,9%. Meira »

Valitor fær aðgang að upplýsingum

16:40 Hæstiréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjavíkur sem felldi úr gildi úrskurð áfrýjunarnefndar samkeppnismála um að neita Valitor um aðgang að upplýsingum um nöfn og verð í kvörtun Borgunar hf. Meira »

Afleit afkoma RBS

Royal Bank of Scotland (RBS)
15:32 Tap breska bankans Royal Bank of Scotland nam 1,99 milljörðum punda, 389,40 milljörðum króna, á síðasta ári.   Meira »

Gannett rukkar fyrir lestur á netinu

Lestur blaða hefur að miklu leyti færst yfir í rafrænt form.
19:29 Gannett, stærsta dagblaðaútgáfa Bandaríkjanna, ætlar að krefja lesendur dagblaða í eigu útgáfunnar fyrir lestur á fréttum blaðanna á netinu. Um áttatíu dagblöð eru í eigu Gannett og þarf að greiða fyrir lestur þeirra allra fyrir utan USA Today. Meira »

Niðurfærsla samþykkt

Gríðarleg óánægja er með fyrirhugaðan niðurskurð í Grikklandi og mótmæli daglegt brauð við þinghúsið í ...
16:55 Gríska þingið samþykkti í dag frumvarp til laga um að heimila niðurfærslu 107 milljarða evra af skuldum ríkissjóðs hjá bönkum og fjármálastofnunum. Meira »

Færir Advania forystu?

Viðskiptavinir Nova ánægðastir

Fulltrúar fyrirtækja sem mældust hæst í Íslensku ánægjuvoginni.
15:49 Viðskiptavinir Nova eru ánægðastir samkvæmt Íslensku ánægjuvoginni 2011. Fékk fyrirtækið 73,3 stig af 100 möguleikum í mælingunni. Í fyrsta sæti í flokki banka er Íslandsbanki og í flokki tryggingafélaga er Tryggingamiðstöðin með hæstu einkunnina. Meira »

Vinnumarkaður að rétta úr kútnum

Atvinnuleysi fer minnkandi í Bandaríkjunum
15:25 Litlar breytingar urðu á nýjum umsóknum um atvinnuleysisbótum í Bandaríkjunum í síðustu viku og bendir allt til þess að vinnumarkaðurinn sé hægt og bítandi að rétta úr kútnum þar í landi. Meira »

Rammagerðin opnar verslun á Akureyri

Lovísa Óladóttir framkvæmdastjóri og Halla Sigbjörnsdóttir verslunarstjóri.
15:03 Gjafavöruverslunin Rammagerðin opnaði í dag, 23. febrúar, nýja verslun á Akureyri. Verslunin er í endurgerðu húsi, Hamborg, að Hafnarstræti 94 á Akureyri. Meira »

Hlutabréf lækka en evran hækkar

Frá kauphöllinni í Frankfurt í dag
15:30 Hlutabréfavísitölur í Evrópu og Bandaríkjunum hafa lækkað í dag en evran hefur styrkst gagnvart Bandaríkjadal.   Meira »

Norska krónan styrkist enn

Norskar krónur.
15:07 Norska krónan hefur verið að styrkjast síðustu misseri og hefur ekki verið sterkari gagnvart evru í níu ár.  Meira »

Ný efnahagslægð á leiðinni

Olli Rehn.
14:59 Skuldakreppan á evru-svæðinu mun draga svæðið niður í nýja efnahagslægð í ár, líkt og lengi hefur verið spáð. Flest nágrannaríkin, sem ekki eru með evruna, munu fara sömu leið, samkvæmt nýrri spá Evrópusambandsins. Meira »

Svipaðar fréttir

Mynt Fjárhæð Mynt Fjárhæð
ISK -   ISK USD - Bandaríkjadalur  USD
EUR - Evra  EUR GBP - Sterlingspund  GBP
CAD - Kanadadalur  CAD DKK - Dönsk króna  DKK
NOK - Norsk króna  NOK SEK - Sænsk króna  SEK
CHF - Svissneskur franki  CHF JPY - Japanskt jen  JPY
Gengi gjaldmiðla

Guðmundur um markaðsmál

mynd Ogilvy um prentauglýsingar.
David Ogilvy er oft kallaður faðir nútíma auglýsingamennsku. Hér verða skoðanir hans á því hvernig hægt er að ná hámarks árangri með prentauglýsingum Meira

finnur.is

Erlendar viðskiptafréttir