Fjórir sparisjóðir boðnir til sölu
Örn Arnarson
ornarnar@mbl.is
Arion banki tilkynnti í gær að hann hygðist selja stofnfé sitt í Afli – sparisjóði og Sparisjóði Ólafsfjarðar. Arion fer með 94,5% stofnfjár Afls og 99,99% stofnfjár í Sparisjóði Ólafsfjarðar.
Þetta þýðir að nú eru fjórir af tíu af þeim sparisjóðum sem reknir eru í landinu til sölu. Bankasýsla ríkisins hefur tilkynnt sölu á 90% stofnfjárhlutar ríkisins í Sparisjóði Svarfdæla, auk þess sem búið er að tilkynna sölu á Sparisjóði Norðfjarðar. Bankasýslan fer fyrir hönd ríkisins með 49,5% hlut í þeim sjóði. Eftir standa þá sparisjóðirnir í Bolungarvík, Vestmannaeyjum og í Þórshöfn auk Sparisjóðs Höfðhverfinga, Sparisjóðs Suður-Þingeyinga og Sparisjóðs Strandamanna. Samanlagðar eignir þessara tíu sparisjóða námu ríflega 60 milljörðum við árslok í fyrra.
Sparisjóðakerfið stendur á veikum stoðum um þessar mundir
Segja má að sparisjóðakerfið standi í heild sinni á veikburða stoðum um þessar mundir þó svo að staða einstakra sjóða sé mismunandi. Samanlagt tap á reglulegri starfsemi fjögurra sparisjóða sem ríkið á stóran hlut í nam samtals ríflega milljarði í fyrra. Um er að ræða Sparisjóð Þórshafnar, Sparisjóð Bolungarvíkur, Sparisjóð Norðfjarðar og Sparisjóð Vestmannaeyja. Allir sjóðirnir sýndu bókfærðan hagnað af rekstrinum í fyrra en sá hagnaður var fyrst og fremst tilkominn vegna tekjufærslu á eftirgjöf skulda við Seðlabanka Íslands á rekstrarárinu. Samtals nam eftirgjöfin á skuldum þessara fjögurra sparisjóða ríflega fimm milljörðum króna. Hefðbundinn rekstur sjóðanna skilaði hins vegar tapi í öllum tilfellum þrátt fyrir endurfjármögnun ríkisins og endurskipulagningu í fyrra.
Rekstur þeirra sparisjóða sem nú eru til sölu hefur einnig verið þungur. Tapið af rekstri sparisjóðsins Afls var ríflega tveir milljarðar í fyrra, sem skýrist að mestu leyti af varúðarfærslu vegna gengistryggðra lána, og eigið fé hans neikvætt um 12,1% við lok síðasta árs. Í mars í ár var gengið frá samkomulagi sjóðsins við Arion sem fól í sér eftirgjöf skulda fyrir 2,4 milljarða og breytingu á 300 milljón króna kröfu í nýtt víkjandi lán. Samkvæmt upplýsingum frá Arion er eiginfjárhlutfall Afls 12,2% efir samkomulagið. Tap á rekstri Sparisjóðs Ólafsfjarðar nam 156 milljónum króna í fyrra og var eigið fé hans neikvætt um 1,2% við árslok. Fyrir liggur samkomulag við Arion banka sem er ætlað að koma eiginfjárhlutfallinu uppfyrir lögbundin mörk en samkvæmt upplýsingum frá Arion hefur því ekki verið hrint í framkvæmd til að væntanlegur kaupandi sjóðsins geti haft áhrif á endanlega útfærslu þess.
Tekjufærslur eftirgjafar skuldar setja svip á afkomuna
Sparisjóður Svarfdæla skilaði hagnaði samkvæmt ársreikningi í fyrra en hagnaðurinn var fyrst og fremst tilkominn vegna tekjufærslu eftirgjafar skuldar við Seðlabakann. Hagnaðurinn nam 135 milljónum en tekjufærslan hljóðaði upp á 343 milljónir. Eiginfjárhlutfall sjóðsins var 10,8% í lok síðasta árs en FME gerir kröfu um að eiginfjárhlutfall hans fari ekki niður fyrir 16%.
Verulegt tap varð á reglulegri starfsemi Sparisjóðs Norðfjarðar í fyrra og nam það tæpum 180 milljónum króna. Samkvæmt uppgjöri sjóðsins nam hagnaðurinn í fyrra tæpum 87 milljónum króna en hins vegar má rekja hann til tekjufærslu á eftirgjöf skulda við Seðlabankann. Hún nam tæpum 270 milljónum króna í fyrra. Hreinar rekstrartekjur sjóðsins námu 209 milljónum króna í fyrra en hins vegar námu rekstrargjöld 183 milljónum auk þess sem framlag í afskriftarreikning vegna útlána nam 205 milljónum. Án tekjufærslu niðurfellingar skuldanna við Seðlabankann stendur því eftir tap upp á tæpar 180 milljónir
Sparisjóðirnir
» Tíu sparisjóðir eru starfræktir í landinu í dag.
» Samanlagðar eignir þessara tíu sparisjóða námu ríflega 60 milljörðum við árslok í fyrra. Rekstrarumhverfi þeirra hefur verið erfitt að undanförnu.
» Fjórir af þessum tíu sparisjóðum hafa nú verið auglýstir til sölu: Sparisjóður Ólafsfjarðar, Sparisjóðurinn Afl, Sparisjóður Svarfdæla og Sparisjóður Norðfjarðar.



















