Viðskipti
| mbl
| 27.9.2011
| 13:43
| Uppfært
20:30
Fljúgandi sigling á mörkuðum
Allar helstu hlutabréfavísitölur heims hafa hækkað mikið í dag og fyrstu viðskipti í kauphöllinni í New York eru á svipaðan veg. Er þetta rakið til vona um að leiðtogar ríkja Evrópu grípi til aðgerða til þess að takast á við skuldakreppuna á evrusvæðinu.
Dow Jones-vísitalan hefur hækkað um 1,06% og er 11.160, 64 stig, S&P 500 hefur hækkað um 1,26% og Nasdaq um 1,85%.
Í Lundúnum hefur FTSE-vísitalan hækkað um 3,12%, CAC-vísitalan hefur hækkað um 4,29% í París og DAX-vísitalan hefur hækkað um 4,49% í Frankfurt.
Í Madríd hefur Ibex-vísitalan hækkað um 3,06% og í Mílanó nemur hækkun FTSE Mib-vísitölunnar 3,78%.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















