Viðskipti
| mbl
| 27.9.2011
| 10:22
Grikkir fá lán í tíma
Fjármálaráðherra Grikklands segir, að grísk stjórnvöld fái næsta hluta af láni, sem Evrópusambandið og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hafa samþykkt að veita, í tæka tíð í október og geti þá greitt af öðrum lánum og laun ríkisstarfsmanna.
Evangelos Venizelos, fjármálaráðherra, sagði í dag að alþjóðlegir lánardrottnar Grikklands gerðu sér fulla grein fyrir fjárhagsstöðu gríska ríkisins og næsti hluti lánsins, jafnvirði 1280 milljarða króna, muni berast „í tæka tíð". Grísk stjórnvöld hafa áður sagt að þau ráði yfir nægu lausafé fram í miðjan október.
Grikkir hafa verið gagnrýndir fyrir seinagang við að framfylgja niðurskurðaráætlunum, sem voru forsenda fyrir lánveitingunni.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















