Viðskipti
| mbl
| 28.9.2011
| 14:29
Spá minnkandi verðbólgu
Greiningardeild Arion banka reiknar með að það dragi úr verðbólgu á næstu mánuðum. 12 mánað verðbólga mældist 5,7% nú í september og hefur ekki verið meiri frá því í júní árið 2010.
Bankinn gerir ráð fyrir, að vísitala neysluverðs hækki um 0,4% í október, um 0,1% í nóvember og aftur um 0,1% í desember. Gangi þessi spá eftir verður ársverðbólgan komin niður í 5,2% í desember.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















