Viðskipti
| mbl
| 29.9.2011
| 8:18
| Uppfært
30.9.2011
10:40
Nokia boðar uppsagnir
Finnski farsímaframleiðandinn Nokia hefur boðað að 3500 manns verði sagt upp til loka næsta árs til viðbótar við þá 7000 sem áður hafði verið tilkynnt að myndu missa vinnuna hjá fyrirtækinu.
Nokia tilkynnti í morgun, að verksmiðju félagsins í Rúmeníu yrði lokað en þar starfa 2200 manns. Þá mun endurskipulagning á rekstri þýða að fækkað verður um 1300 störf til viðbótar.
Fyrirtækið hefur sagt, að það stefni að því að lækka kostnað um 1 milljarð evra fyrir árið 2013.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















