Viðskipti
| mbl
| 30.9.2011
| 9:40
| Uppfært
10:43
30 milljónir taflna á markað
Verksmiðja Actavis á Möltu hefur sent rúmlega 30 milljónir taflna af samheitalyfinu Olanzapine á markað í Evrópu.
Fram kemur í tilkynningu frá Actavis, að lyfið fari til viðskiptavina Actavis og Medis, en Medis er íslenskt dótturfyrirtæki Actavis sem sér um sölu tilbúinna lyfja til annarra lyfjafyrirtækja sem selja lyf undir eigin vörumerki.
Olanzapine er þróað af vísindamönnum Actavis í Hafnarfirði, en framleitt í verksmiðju Actavis á Möltu. Olanzapine er samheitalyf Zyprexafrá Eli Lilly og er notað við geðklofa og geðhvarfasýki. Samheitalyfið Olanzapine fer nú á markað þar sem einkaleyfi lyfsins eru að falla úr gildi.
Actavis segir, að þetta sé stærsta einstaka markaðssetning Actavis og Medis á þessu ári.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















