Viðskipti
| mbl
| 30.9.2011
| 23:17
Kodak neitar frétt um gjaldþrot
Óttast er að bandaríska ljósmyndavörufyrirtækið Kodak sé við það að verða gjaldþrota, en Wall Street Journal sagði frá því í dag að fyrirtækið hefði ráðið lögfræðifyrirtækið Jones Day til að leggja fram tillögur um gjaldþrot eða aðrar leiðir út úr fjárhagsvandanum. Kodak vísaði þessum fregnum á bug í kvöld.
Kodak á í fjárhagserfiðleikum og hafa skuldir fyrirtækisins aukist. Fyrirtækið hefur starfað í 131 ár, en síðustu ár hafa verið fyrirtækinu erfið vegna samkeppni frá stafrænum myndavélum.
Verð hlutabréfa í Kodak tóku mikla dýfu í kvöld í kjölfar frétta um erfiðleika fyrirtækisins. Hjá fyrirtækinu starfa um 19 þúsund manns í Bandaríkjunum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















