Viðskipti
| Morgunblaðið
| 5.10.2011
| 5:30
Stemning fyrir óverðtryggðum lánum
„Flestir sem að skoða þennan möguleika held ég að sjái að þetta er nokkuð góður kostur,“ segir Haraldur Guðni Eiðsson, upplýsingafulltrúi hjá Arion banka.
Bankinn hóf nýlega að bjóða upp á óverðtryggð íbúðalán með föstum vöxtum til fimm ára. Veitt er lán með 6,45% vöxtum fyrir allt að 60% af markaðsvirði íbúðarinnar. Hægt er að fá að láni 20% til viðbótar en þá með ríflega eins prósentustigs álagi.
Í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag segir Haraldur hafa mátt greina mikinn áhuga á þessum nýju lánum. Verður enda að teljast ansi vel boðið ef tekið er með í reikninginn að síðustu ár hefur 12 mánaða verðbólga sveiflast frá tæplega 2% og upp í ríflega 18%. Til samanburðar eru verðtryggð íbúðalán Arionbanka boðin með 4,3% vöxtum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















