Viðskipti
| AFP
| 6.10.2011
| 7:00
Olíuverð lækkar
Heimsmarkaðsverð á olíu hefur lækkað í dag eftir hækkun í gær en fjárfestar eru enn efins um hvort takist að bjarga Evrópu og Bandaríkjunum frá efnahagssamdrætti.
Í New York lækkaði verð á hráolíu um 9 sent og er 79,59 Bandaríkjadalir tunnan af olíu til afhendingar í nóvember.
Í Lundúnum lækkaði verð á Brent Norðursjávarolíu um 44 sent og er 102,29 dalir tunnan.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















