Spænskir bankar fá lægri einkunn
Lánshæfiseinkunn helstu banka á Spáni var lækkuð af tveimur matsfyrirtækjum í dag, Standard & Poor's og Fitch. Meðal þeirra banka sem voru lækkaðir í einkunn eru Santander og BBVA.
Í tilkynningu frá S&P kemur fram að verri efnahagsaðstæður og staðan hjá fjármálafyrirtækjum séu ástæður þess að fyrirtækið lækkaði lánshæfiseinkunn tíu spænskra banka. Dökkar horfur blasi við í hagkerfi Spánar á næstunni og lítið beri á framförum á fasteignamarkaði. Telur matsfyrirtækið að litlar líkur séu á bata í fjármálageiranum á Spáni næstu fimmtán til átján mánuði.
S&P lækkaði einkunn Banco Santander um eitt þrep í AA- með neikvæðum horfum og það sama gerði Fitch.
Banco Bilbao Vizcaya Argentaria lækkaði einnig í AA- með neikvæðum horfum hjá S&P og Fitch lækkaði einnig bankann um eitt stig í A+.
Fitch lækkaði lánshæfiseinkunn sex spænskra banka í dag en matsfyrirtækið lækkaði í síðustu viku lánshæfiseinkunn spænska ríkisins.



















