Enginn vafi um að krónan hafi hjálpað
Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, segist ekki vera neinum vafa að þau hagstæðu samkeppnisskilyrði sem sköpuðust vegna gengisfalls krónunnar hafi hjálpað hagkerfinu gegnum samdráttarskeið undanfarinna ár.
Þetta kom fram á opnum fundi efnahags- og viðskiptanefndar með fjármálaráðherra í morgun. Magnús Orri Schram, þingmaður Samfylkingarinnar, spurði Steingrím út í framtíðarsýn hans í peningamálum. Steingrímur sagði að ekkert annað benda til þess en að peningamálastefnan verði áfram sjálfstæð á næstu árum og lagði á það áherslu að gjaldmiðillinn sem slíkur getur aldrei verið orsök efnahagserfiðleika heldur er það efnahagsstefnan sem skiptir máli í þessu samhengi. Minnti fjármálaráðherra Magnús Orra ennfremur á að það virðist vera jafn mögulegt að komast í efnahagsvanda með krónum og evrum.



















