Fölsuðu upplagstölur
Enn eitt hneykslismálið skekur fjölmiðlaveldi Ruperts Murdochs, News Corp, en Andrew Langhoff, útgáfustjóri Wall Street Journal í Evrópu hefur sagt af sér eftir að í ljós kom að blaðið hafi falsað sölutölur til þess að auka sölu á auglýsingum í blaðinu.
Sagði Langhoff af sér eftir að rannsókn breska dagblaðsins Guardian leiddi í ljós svindlið hjá flaggskipi News Corp., Wall Street Journal.
Rannsóknarblaðamenn hjá Guardian unnu að rannsókn málsins en í ljós kom að Evrópu-hluti Wall Street Journal hafði falsað upplagstölur með því að kaupa eintök af blaðinu í gegnum fyrirtæki svo það liti út fyrir að það seldist betur en það gerði. Var þetta gert til þess að afvegaleiða lesendur og auglýsendur.
Eins og fram hefur komið stendur yfir rannsókn á símahlerunum hjá öðrum blöðum í eigu News Corp. í Bretlandi en útgáfu sunnudagsblaðsins News of the World var hætt í sumar vegna slíkra ólöglegra hlerana.




















