Töluverður vöxtur einkaneyslu
Þróun kortaveltu á 3. ársfjórðungi gefur til kynna talsverðan vöxt einkaneyslu á tímabilinu og bendir einnig til þess að þjónustujöfnuður kunni að verða hagstæðari á fjórðungnum en á sama tíma í fyrra. Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka.
Samkvæmt nýbirtum tölum Seðlabankans var kreditkortavelta í september 29,4 milljarðar króna og heildarvelta debetkorta nam 33,3 miljörðum króna í mánuðinum. Í krónum talið minnkaði bæði debet- og kreditkortavelta frá ágústmánuði.
Að raungildi var kortavelta hins vegar talsvert meiri í september en á sama tíma í fyrra, líkt og raunin hefur verið undanfarið. Kreditkortavelta jókst þannig um 5,5% að raungildi milli ára, sem er heldur hægari raunvöxtur en verið hefur undanfarna mánuði, og kemur hægari vöxtur bæði fram í innlendu og erlendu veltunni. Þá jókst debetkortavelta í innlendum verslunum um 4,8% að raungildi á sama tíma.
„Kreditkortavelta, að debetkortaveltu í innlendum verslunum viðbættri, gefur glögga mynd af þróun einkaneyslu hér á landi. Kortatölur þriðja ársfjórðungs gefa til kynna að einkaneysla hafi vaxið á bilinu 3% - 5% á tímabilinu frá sama tíma í fyrra. Til samanburðar var vöxtur einkaneyslu u.þ.b. 3% á fyrri hluta ársins frá sama tíma árið 2010. Þessi niðurstaða er einnig í samræmi við nýja þjóðhagsspá okkar, sem gerir ráð fyrir 3,2% vexti einkaneyslu á yfirstandandi ári.
Úttekt af erlendum greiðslukortum hér á landi nam 5,5 mö.kr. í septembermánuði. Er það helmingi minni velta en var í ágústmánuði, sem er skiljanlegt í ljósi árstíðasveiflu í komum ferðamanna. Veltan var hins vegar ríflega fjórðungi meiri en í sama mánuði í fyrra. Að teknu tilliti til verðbólgu jókst velta vegna erlendra korta um fimmtung á milli ára. Þessar tölur ríma við aðrar vísbendingar um mikla fjölgun ferðamanna hér á landi milli ára. Tölurnar benda einnig til þess að myndarlegur afgangur verði á þjónustujöfnuði á fjórðungnum, líkt og í fyrra, þrátt fyrir kortavelta Íslendinga erlendis hafi einnig vaxið töluvert á milli ára," segir í Morgunkorni.



















