Viðskipti
| mbl
| 18.10.2011
| 8:27
Rio Tinto lækkar um 4,41%
Allar helstu hlutabréfavísitölur í Evrópu hafa lækkað það sem af er morgni. Í Lundúnum hafa hlutabréf Rio Tinto, sem meðal annars á Alcan sem á og rekur álverið í Straumsvík, lækkað um 4,41%.
FTSE vísitalan í Lundúnum hefur lækkað um 1,33%, DAX í Frankfurt hefur lækkað um 2,84% og CAC vísitalan í París hefur lækkað um 1,81%.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















