Skuldatryggingarálagið á niðurleið
Skuldatryggingarálag á ríkissjóð Íslands hefur lækkað nokkuð á síðustu dögum, eða frá því að það náði sínu hæsta gildi á árinu í byrjun þessa mánaðar. Þannig var það komið upp í 330 punkta (3,30%) þann 4.október síðastliðinn en stóð í lok dags í gær í 279 punktum samkvæmt gögnum úr Bloomberg-gagnaveitunni.
Í samanburði við skuldatryggingarálag annarra ríkja Vestur Evrópu (en 17 ríki eru skoðuð í þessum samanburði) er álagið á Ísland hið sjöunda hæsta.
Álagið á Grikkland er enn langhæst af ríkjum Vestur Evrópu og þó víðar væri leitað, en það var nálægt 6.000 punktum í lok dags í gær, segir í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka.
Þar á eftir komu Portúgal (1.110 punktar), Írland (749 punktar), Ítalía (444 punktar), Spánn (380 punktar) og svo Belgía (297 punktar).
Álagið á Ísland það eina sem er á niðurleið
„Þess má geta að á sama tíma í fyrra stóð álagið á Ísland í 343 punktum og var þá hið fjórða hæsta á meðal ríkja Vestur Evrópu. Er það rúmlega 60 punktum lægra í dag en þá og er það í raun eina tilvikið í þessum samanburði þar sem þróunin er í þessa hátt enda hefur áhættuálagið hækkað á öll önnur ríki Vestur Evrópu á þessum tíma.
Sú þróun kemur ekki á óvart m.v. ástandið erlendis sem hefur farið stigversnandi á undanförnum mánuðum og áhættufælnin stóraukist samhliða.
Hlutfallslega hefur álagið á danska ríkið hækkað mest á þessu tímabili og er það nálægt 12 sinnum hærra í dag en það var fyrir ári síðan, eða 128 punktar á móti 11 punktum. Einnig hefur álagið á hin Norðurlöndin hækkað mjög mikið en þó ber að nefna að álagið á þau ríki er enn í lægri kantinum m.v. önnur Evrópuríki. Álagið á Finnland hefur hækkað úr 7 punktum í 74 punkta á þessu tímabili, álagið á Svíþjóð úr 9 punktum í 57 punkta og álagið á Noreg úr 7 punktum í 46 punkta," segir í Morgunkorni.



















