Spá óbreyttum stýrivöxtum
IFS Greining spáir því að stýrivöxtum Seðlabanka Íslands verði haldið óbreyttum á næsta fundi SÍ sem fram fer 2. nóvember nk.
IFS segir að helstu ástæðurnar séu m.a. þær að verðbólguvæntingar á markaði hafi batnað til lengri tíma litið, þá sé slakinn í þjóðarbúskapnum enn mikill og vaxtahækkun gæti dregið hann á langinn.
„Á síðasta stýrivaxtafundi sagði seðlabankastjóri að ekki sé verið að beygja út af vaxtahækkunarferlinu með óbreyttum stýrivöxtum. Verið sé að horfa til meðallangs tíma en ekki sé verið að einblína á breytingar á gögnum frá mánuði til mánaðar.
Helstu röksemdir peningastefnunefndar fyrir óbreyttum stýrivöxtum í september sl. voru þær að minni verðbólga var í ágúst en búist hafði verið við, áframhaldandi styrking gengis krónunnar og lakari horfur í heimsbúskapnum,“ segir í tilkynningu frá IFS.
Helstu ástæður fyrir spá IFS eru eftirfarandi:
- Að verðbólguvæntingar á markaði hafa batnað til lengri tíma litið.
- Slakinn í þjóðarbúskapnum er enn mikill og vaxtahækkun gæti dregið hann á langinn.
- Nýbirt hagspá IFS Greiningar frá því í september gerir ráð fyrir minni hagvexti á þessu og næstu tveimur árum, lágri verðbólgu og óbreyttum stýrivöxtum í kjölfarið. Við gerum ráð fyrir því að næsta hagspá Seðlabankans verði svartsýnni en fyrri spá bankans en verðbólguspáin bjartsýnni.
- OECD hvetur til óbreyttra stýrivaxta.
- Viðskiptavegin gengisvísitala íslensku krónunnar hefur haldið áfram að lækka.



















