Viðskipti
| mbl
| 27.10.2011
| 12:21
Bankar leiða hækkun
Allar helstu hlutabréfavísitölur í Evrópu hafa hækkað mikið það sem af er degi og eru það hlutabréf banka sem hafa hækkað mest í kjölfar samkomulags leiðtoga evru-ríkjanna vegna vanda evru-svæðisins. 50% skulda Grikklands verða afskrifaðar í bankakerfinu.
Í París hefur CAC hlutabréfavísitalan hækkað um 5,48% og hafa hlutabréf franska bankans Credit Agricole hækkað um 22,5%.
Í Frankfurt hefur DAX vísitalan hækkað um 4,75% og nemur hækkun hlutabréfa Deutche Bank 16,37%.
Í Lundúnum hefur FTSE vísitalan hækkað um 2,77% og hafa hlutabréf Royal Bank of Scotland hækkað um 15,58%.
Í Madríd hefur Ibex vísitalan hækkað um 4,11% og í Mílanó hefur FTSE Mib vísitalan hækkað um 5,11%.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















