Viðskipti
| mbl
| 27.10.2011
| 9:04
| Uppfært
19.12.2011
21:12
Verðbólgan 5,3%
Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 5,3% og vísitalan án húsnæðis um 5,0%. Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í október hækkaði um 0,34% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,30% frá september, samkvæmt frétt Hagstofu Íslands. Í síðasta mánuði mældist tólf mánaða verðbólga á Íslandi 5,7%. Greiningardeildir höfðu almennt spáð því að verðbólgan myndi minnka á milli mánaða þrátt fyrir að vísitala neysluverðs hækki á milli mánaða.
Verð á bensíni og olíum lækkaði um 1,9% (vísitöluáhrif -0,11%) en verð á fötum og skóm hækkaði um 1,7% (0,10%).
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















