Skuldatryggingarálag Íslands hækkar
mbl.is
Skuldatryggingarálag á ríkissjóð Íslands hefur hækkað nokkuð á síðustu dögum og stóð í lok dags í gær 300 punktum (3,00%) samkvæmt gögnum úr Bloomberg-gagnaveitunni.
Á árinu hefur álagið farið hæst upp í 330 punkta sem var í byrjun október en lægst niður í 200 punkta sem var snemma í júní. Að jafnaði hefur skuldatryggingarálag ríkissjóðs verið 260 punktar á árinu, segir í Morgunkorni Íslandsbanka.
Er álagið á Ísland jafnframt á ný orðið hærra en álagið á Belgíu sem stóð í 270 punktum í lok dags í gær. Er skuldatryggingarálagið á Ísland þar með hið sjötta hæsta í samanburði við skuldatryggingarálag annarra ríkja Vestur-Evrópu (17 í þessum samanburði).
Álagið á Grikkland er enn langhæst af ríkjum Vestur Evrópu og þó víðar væri leitað. Næsthæst er álagið á Portúgal sem hefur þó mjakast aðeins niður við að undanförnu, en það var 971 punktar í lok dags í gær. Þar á eftir kemur Írland (697 punktar), Ítalía (446 punktar) og svo Spánn (341 punktar). Álagið er lægst á nágrannalönd okkar Noreg (38 punktar) og svo Svíþjóð (49 punktar).



















