Hagnaður Landsbankans 27 milljarðar

Hagnaður Landsbankans nam 2,5 milljörðum króna eftir skatta á þriðja ársfjórðungi 2011. Hagnaður sama tímabils á síðasta ári var 3,5 milljarðar króna. Samanlagður hagnaður Landsbankans fyrstu níu mánuði ársins nemur rétt tæpum 27 milljörðum króna.

Stór hluti þess hagnaðar er hækkun hlutabréfa í eigu Horns fjárfestingarfélags hf., dótturfélags Landsbankans, á fyrsta ársfjórðungi, að því er fram kemur í tilkynningu frá bankanum.

Arðsemi eigin fjár af rekstri bankans var 4,8% á þriðja ársfjórðungi en samanlögð arðsemi eigin fjár fyrstu níu mánuði ársins er 18,2%.

Virðisrýrnun á útlánum til einstaklinga en virðisaukning á lánum fyrirtækja

Virðisrýrnun á útlánasafni til einstaklinga á þriðja ársfjórðungi nemur 1,4 milljarði króna. Virðisaukning lánasafns bankans til fyrirtækja nemur hins vegar 8,3 milljörðum króna á sama tíma, en stærstur hluti hennar rennur til LBI hf. (gamla Landsbankans). Þegar allt er reiknað fyrstu níu mánuði ársins hefur virðisaukning lánasafns bankans skilað tæpum 800 milljónum króna til rekstrar Landsbankans hf.

Eiginfjárhlutfall Landsbankans er nú 23,6% og hefur hækkað um 6,3% frá sama tíma á síðasta ári. Eigið fé bankans er nú 210,2 milljarðar króna miðað við 184,9 milljarða króna í lok árs 2010.

Hlutfall yfir 90 daga vanskila fer hratt lækkandi, er nú 14,5% samanborið við 24,5% um mitt þetta ár.

Þóknunartekjur bankans hafa aukist á fyrstu níu mánuðum ársins um 37% miðað við sama tíma á síðasta ári.  Hreinar rekstrartekjur námu alls 39,7 milljörðum króna fyrstu níu mánuði ársins samanborið við 28,0 milljarða króna á sama tímabili árið 2010. Munurinn skýrist að stórum hluta af gengisbreytingum á hlutabréfum í eigu Horns fjárfestingafélags hf.

Heildareignir 1.124 milljarðar

Á þriðja ársfjórðungi námu hreinar rekstrartekjur 7,9 milljörðum króna samanborið við 9,6 milljarða þriðja ársfjórðungi 2010.  Hreinar vaxtatekjur á tímabilinu námu 24,6 milljörðum króna samanborið við 19,5 milljarða á sama tíma á árinu 2010. Á þriðja ársfjórðungi námu hreinar vaxtatekjur 7,7 milljörðum samanborið við 5,8 milljarða á þriðja ársfjórðungi 2010.

Heildareignir bankans voru í lok september 1.124 milljarðar króna en staða í lok árs 2010 var 1.081 milljarður króna.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK