Viðskipti
| AFP
| 3.11.2011
| 21:07
Hressileg hækkun á Wall Street
Bandarískar hlutabréfavísitölur hækkuðu hressilega í dag meðal annars vegna jákvæðra fregna af komu fyrirtækja, góðra fregna af vinnumarkaði í Bandaríkjunum og ákvörðunar Seðlabanka Evrópu um að lækka stýrivexti í 1,25%.
Dow Jones hlutabréfavísitalan hækkaði um 1,76%, S&P 500 vísitalan hækkaði um 1,88% og Nasdaq hækkaði um 2,20%.
Segja sérfræðingar á fjármálamarkaði að sex af hverjum tíu fyrirtækjum sem eru skráð á markað hafi skilað meiri hagnaði heldur en væntingar voru um en hlutabréf í matvælafyrirtækinu hækkuðu um 3,3%, örgjörvafyrirtækið Qualcomm hækkaði um 7,5% og hlutabréf Jefferies Group réttu úr kútnum eftir að hafa lækkað um 10% vegna stöðu þess í evrópskum skuldabréfum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















