Viðskipti
| mbl
| 4.11.2011
| 9:19
| Uppfært
5.11.2011
22:30
Þórarinn: Hvernig datt ykkur þetta í hug?
Þórarinn Pétursson aðalhagfræðingur ásamt Má Guðmundssyni og Arnóri Sighvatssyni. Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur Seðlabankans, segir tilgang vaxtahækkunarinnar á miðvikudag fyrst og fremst hafa verið að koma í veg fyrir víxlverkanir launahækkana og verðlags.
Þetta sagði Þórarinn í pallborðsumræðum á fundi Viðskiptaráðs um efnahagshorfurnar. Þórarinn spurði svo fulltrúa atvinnurekenda út í sal hvernig þeim hafi dottið í hug að semja um svo miklar launahækkanir í kjarasamningunum fyrr á þessu ári. Með þessari spurningu vísaði Þórarinn til þess nú væri Seðlabankinn að bregðast við áhrifum þessara launahækkana og reyna afstýra annarrar gráðu áhrifum þeirra í hagkerfinu.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















