Tæplega 400 samningum þinglýst
Alls var 393 kaupsamningum um fasteignir þinglýst við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í október. Heildarvelta nam 11,2 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 28,6 milljónir króna.
Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 7,2 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 3,1 milljarði og viðskipti með aðrar eignir 0,9 milljörðum króna.
Þjóðskrá Íslands segir að þegar október 2011 er borinn saman við september 2011 fækki kaupsamningum um 13,2% og velta minnki um 7,8%.
Í september 2011 var þinglýst 453 kaupsamningum, velta nam 12,2 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 26,9 milljónir króna.
Þegar október 2011 er borinn saman við október 2010 fjölgar kaupsamningum um 32,8% og velta eykst um 42%. Í október 2010 var þinglýst 296 kaupsamningum, velta nam 7,9 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 26,7 milljónir króna.



















