Viðskipti
| AFP
| 8.11.2011
| 22:09
| Uppfært
9.11.2011
0:04
Hlutabréf hækkuðu eftir afsögnina
Hlutabréf hækkuðu á bandarískum mörkuðum eftir að Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, tilkynnti afsögn sína í dag. Dow Jones-vísitalan hækkaði um 101,79 stig, eða 0,84% og var við lokun 12,170.18.
Nasdaq-vísitalan hækkaði um 32,24 stig, sem samsvarar 1,2% og S&P 500 vísitalan hækkaði í 1,275,92.
Þá hækkuðu hlutabréf í JPMorgan Chase um 2,2% og Bank of America um 1,2%.
Hlutabréf í nokkrum fyrirtækjum lækkuðu þó, til dæmis lækkaði verð hlutabréfa í skyndibitakeðjunni McDonalds um 0,02%.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















