Viðskipti
| AFP
| 9.11.2011
| 15:54
Finnland fær hæstu einkunn
Alþjóðlega matsfyrirtækið Standard and Poor's staðfesti í dag lánshæfiseinkunn finnska ríkisins en það er með hæstu einkunn, AAA.
Segir í tilkynningu S&P að bæði hagkerfi Finnlands og pólitískt landslag sé gott og fjárhagsleg staða ríkissjóðs með því besta sem gerist meðal þeirra ríkja sem eru í AAA flokki.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















