Hæsta sekt sem um getur
Dómari hefur að kröfu bandaríska fjármálaeftirlitsins gert kaupsýslumanninum Ray Rajaratnam að greiða 92,8 milljónir dala, 10,7 milljarða dala, í sekt fyrir margvísleg lagabrot. Er þetta hæsta sekt sem um getur í máli af þessu tagi.
Áður hafði Rajaratnam verið dæmdur í 11 ára fangelsi fyrir innherjasvik og lögmenn hans segja að hann sé þegar búinn að greiða 63,7 milljónir dala, 7,3 milljarða króna.
Rajaratnam, sem er fæddur á Srí Lanka, stýrði vogunarsjóðnum Galleon Group. Hann var fundinn sekur um stórfelld innherjasvik og önnur brot á lögum um verðbréfaviðskipti. Hann mun hefja afplánun dómsins í desember.
Fjármálaeftirlitið krafðist þess að Rajaratnam yrði sektaður um þrefalda þá fjárhæð, sem hann var talinn hafa aflað með ólöglegum hætti.



















