Íslenska bankakerfið metið hærra

stækka

Reuters

Matsfyrirtækið Standard&Poors (S&P) hækkaði í gær hið svokallaða BICRA (e. banking industry country risk assessment) mat sitt á íslenska bankakerfinu. Er bankakerfið nú sett í hóp 7 í stað hóp 8, en BICRA-skalinn er frá 1 til 10 þar sem 1 er hæsta einkunn (minnsta áhættan) og 10 er lægsta einkunn (mesta áhættan). Hækkunin merkir það að dregið hefur úr áhættunni í hinu íslenska bankakerfi að mati S&P, segir í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka.

Aðferðafræðin við mat á BICRA er að skipta matinu niður í tvo hluta, þ.e. greiningu á efnahagslegri áhættu (e. economic risk) og svo áhættu innan bankageirans (e. industry risk). Fyrrnefndi þátturinn tekur til ójafnvægis í efnahagslífinu, viðnámsþróttar hagkerfisins og svo lánsáhættu þess, þ.e. heimila og fyrirtækja. Sá síðarnefndi er ákvarðaður af gæðum og skilvirkni á reglugerðaumhverfi bankakerfisins, sá fyrri frammistöðu yfirvalda í að draga úr næmni gagnvart fjármálakreppum, samkeppnis- og rekstrarumhverfi bankakerfisins og svo fjármögnunarmöguleikum banka, þar með talið hlutverki seðlabankans og ríkisstjórnar. Bæði efnahagsleg áhætta og áhætta innan geirans á Íslandi er metin á 7, samkvæmt Morgunkorni.

„Í tilkynningu S&P um áhættu bankakerfisins á Íslandi er farið lauslega yfir mat fyrirtækisins á hverjum þætti fyrir sig. Kemur þar fram að S&P telur íslenska hagkerfið sveigjanlegt, að hér sé stöðugt og þroskað stjórnmálakerfi og lífskjör íbúa góð sem styður við viðnámsþrótt hagkerfisins. Á hinn bóginn dregur úr viðnámsþrótti hagkerfisins hér á landi hversu sveiflukennt og einhæft það er og hversu mikil skuldabyrði einkageirans og ríkisins er.

S&P sér jákvæða þróun í ýmsum stærðum efnahagsmála. Má þar nefna hagvöxt, atvinnuleysi, verðbólgu, viðskiptajöfnuð, íbúðaverð og að endurskipulagningu skulda.

Á hinn bóginn telur fyrirtækið endurreisnina viðkvæma og gæti hún auðveldlega verið trufluð af þáttum á borð við veikari erlenda eftirspurn eða þá óvissu um endurskipulagningu skulda," segir í Morgunkorni.

Í umfjölluninni um lánaáhættu kemur ekki á óvart að S&P nefnir mikla skuldsetningu bæði heimila og fyrirtækja. Telur S&P að lánaáhætta sé áfram stór áhættuþáttur fyrir íslenska banka.

S&P telur að á móti þessu vegi að hér á landi sé greiðsluvilji almennt mikill og að hér sé réttaríki. Áhætta bankageirans S&P telur nokkra áhættu felast í stofnanaumhverfi bankakerfisins. Taka þeir þó fram að regluverkið hafi tekið miklum breytingum frá bankahruninu og einnig að fjármálakerfið sé orðið mun umfangsminna nú en fyrir hrun og því auðveldara að hafa eftirlit með því.

Áhættusæknin er hófleg í kerfinu að mati S&P en engin reynsla er þó komin enn á skilvirkni hins nýja kerfis. Ólíkt gömlu bönkunum bjóða nýju bankarnir ekki upp á flóknar fjármálaafurðir eða taka þátt í áhættusæknum viðskiptum.

Telur S&P líklegt að stöðugleiki í kerfinu verði frekar mikill í framtíðinni. S&P telur hins vegar mjög mikla áhættu felast í fjármögnunarmöguleikum alls bankakerfisins. Telur fyrirtækið að bankakerfið hér á landi sé með frekar lágt hlutfall tryggra innistæðna ( þ.e. 31% af heildarlánum) og mjög lágt hlutfall af utanaðkomandi fjármögnun (9%).

Jafnframt telur fyrirtækið það veikleika í bankakerfinu að stór hluti utanaðkomandi fjármögnunar séu innistæður erlendra aðila, sem eru í dag eru lokaðar inni í kerfinu vegna gjaldeyrishafta sem gætu því horfið þegar höftunum verður aflétt.

Óvissa um stuðning ríkisins

Í lokin kemur fram að S&P telur óvissu um hvort að stuðningur sé við fjármálakerfið af hálfu íslenska ríkisins.

„Endurspeglar það að ríkið hafi áður látið bankana falla og látið erlenda lánadrottna taka á sig tapið að miklu leyti.“

Mikil áhætta í alþjóðlegum samanburði

S&P metur áhættu bankakerfisins í 86 löndum og eru einungis tvö lönd sem eru metin í hóp 1, þ.e. Kanada og Sviss. Ljóst er að áhætta íslenska bankakerfisins er metin mikil í alþjóðlegum samanburði og eru lönd á borð við Búlgaríu, Ungverjaland, Írland, Litháen og Rússland í sama flokki á Ísland.

Augljóslega er áhættan metin mun minni á hinum Norðurlöndunum, þar sem Finnland, Noregur og Svíþjóð eru með BICRA mat 2 en Danmörk 3. Þrjú lönd eru með BICRA mat 10 sem eru Grikkland, Hvíta Rússland og Víetnam," segir í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Viðskipti »

Í Flatey á Mýrum í Austur-Skaftafellssýslu er rekið stærsta kúabú landsins. Búið var auglýst til ...

Tekur þrjú ár að selja 45 jarðir

18:27 Landsbankinn reiknar með að það taki um þrjú ár að ljúka sölu á öllum jörðum í eigu jarðafélagsins Lífsvals, en félagið á um 45 jarðir. Bankinn hefur auglýst 20 þeirra til sölu um helgina, m.a. stærsta kúabú landsins. Meira »
Verslun Moss Bros í Oxford Street.

29% hlutur í Moss Bros seldur

16:19 Tæplega þriðjugur hlutafjár í karlmannafataversluninni Moss Bros hefur skipt um hendur, en fyrirtækið var um tíma í eigu Baugs. Meira »

Býr sig undir hugsanlegt hrun evrunnar

15:50 Englandsbanki hefur hafið undirbúning fyrir það ef til þess kemur að evrusvæðið liðist í sundur að meira eða minna leyti. Meðal þeirra ráða sem bankinn hyggst grípa til ef á þarf að halda er að lækka vexti og frekari magnslökun. Meira »

58 skjölum um atvinnuhúsnæði þinglýst

10:53 Í apríl síðastliðnum var 58 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst og 48 utan þess. Heildarfasteignamat seldra eigna á höfuðborgarsvæðinu var 9.056 milljónir króna en 631 milljón króna utan þess. Af þessum samningum voru 16 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

9,8% samdráttur í vörusölu á Spáni

Fólk mótmælir niðurskurði á Spáni.
10:07 Vörusala á Spáni dróst saman um 9,8% í apríl, borið saman við sama mánuð í fyrra. Samdrátturinn er mun meiri en reiknað hafði verið með. Þetta er 22. mánuðurinn í röð þar sem vörusala dregst saman á Spáni. Meira »

Hækkun á mörkuðum í Asíu

Hækkun varð í kauphöllinni í Tókýó í Japan dag.
08:28 Hækkun varð á mörkuðum í Asíu annan daginn í röð. Er hækkunin m.a. rakin til aukinnar bjartsýni um að Grikklandi haldi áfram evrusamstarfinu. Meira »

Væntingar vaxa lítillega í maí

Væntingar aukast með hækkandi sól.
11:16 Væntingar íslenskra neytenda jukust lítillega í maímánuði, en væntingavísitala Gallup, sem Capacent Gallup birti í morgun, hækkaði um tvö stig frá fyrri mánuði og mælist nú 73,3 stig. Meira »

Lægri verðbólga vegna lægra orkuverðs

Olíuverð hefur stuðlað að lægri verðbólgu.
10:29 Lægra orkuverð hefur stuðlað að lækkun verðbólgu í löndum OECD. Verðbólga í 34 aðildarlöndum OECD mældist 2,7% í mars. Verðbólga minnkaði mest í Bandaríkjunum, Kína og Bretlandi. Meira »

Innsýn í reksturinn

Fjölmiðlavaktin undir eigin vörumerki

Fréttamiðlun og samfélagsumræða hefur í auknum mæli flust yfir á netið.
09:54 Fjölmiðlavaktin, sem stofnuð var árið 1980, hefur undanfarin ár verið rekin undir merkjum Creditinfo en starfar nú á ný undir eigin vörumerki. Engar breytingar hafa þó orðið á eignarhaldi. Meira »

Yfirtekur rekstur sjóða rekstrarfélags Byrs

í gær Íslandssjóðir hf., dótturfyrirtæki Íslandsbanka, hefur yfirtekið rekstur verðbréfa- og fjárfestingarsjóða rekstrarfélags Byrs í framhaldi af sameiningu Íslandsbanka og Byrs. Meira »

Raunhæft að ríkið greiði sér brátt arð úr bönkunum

26.5. Þrátt fyrir að það megi teljast raunhæft að ríkið geti bráðlega greitt sér út arð úr bönkunum er hins vegar mikilvægt að þeir fjármunir verði nýttir annaðhvort til að greiða niður skuldir ríkisins eða til fjárfestinga í verkefnum með sambærilega arðsemiskröfu og Bankasýsla ríkisins gerir til þeirra banka sem ríkið á eignarhlut í. Meira »

Spænsk hlutabréf ekki lægri í níu ár

Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar, hefur í dag reynt að róa fjárfesta.
í gær Hlutabréfavísitala á Spáni lækkaði um 2,17% í dag en hún hefur ekki verið lægri í níu ár. Ástæðan er ótti fjárfesta við afleiðingar hruns Bankia, fjórða stærsta banka Spánar. Meira »

Grikkir uppiskroppa með fé í júní

Lucas Papademos, fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands.
27.5. Fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands, Lucas Papademos, varar við því að ef Grikkir fái ekki frekari fjárhagsaðstoð frá Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum verði þeir orðnir uppiskroppa með fjármuni í lok júní. Meira »

Tap af rekstri OR nam 4 milljörðum

25.5. Rekstrarhagnaður (EBIT) Orkuveitu Reykjavíkur varð 4,9 milljarðar króna á fyrsta ársfjórðungi 2012. Það er afkomubati fyrir fjármagnsliði og skatta um liðlega 42% frá sama tímabili 2011. Ytri þættir – þróun álverðs og gengi krónunnar – voru heildarafkomunni áfram óhagstæðir. Tap af rekstri OR á tímabilinu nam 3.998 milljónum kr. Meira »

Svipaðar fréttir

Mynt Fjárhæð Mynt Fjárhæð
  ISK   USD
  EUR   GBP
  CAD   DKK
  NOK   SEK
  CHF   JPY
Gengi gjaldmiðla

Sigurður Már Jónsson

mynd Ferðamennska til fjár
Fyrstu fjóra mánuði ársins fjölgaði erlendum ferðamönnum sem hingað koma um 20% sé miðað við síðasta ár. Það er staðfesting á þeim gríðarlega vexti Meira

Frosti Sigurjónsson

mynd Afnám hafta: Umræður á Alþingi
Afnám gjaldeyrishafta er afar mikilvægt úrlausnarefni stjórnvalda sem hefur verið furðu lítið rætt í Alþingi. Svo bar þó við að málið komst á dagskrá Meira

Már Wolfgang Mixa

mynd Vísitala fjármálalæsis á Íslandi fellur
Stofnun um fjármálalæsi og sálfræðisvið viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík birtir fimmtudaginn 3. maí rannsókn þar sem þekking, viðhorf og hegðun Meira

Bjarni Gylfason

mynd Iðjusemi jafngildir ekki aukinni framleiðni
Þrátt fyrir djúpa kreppu síðustu ár verður ekki litið framhjá þeirri mikilvægu staðreynd að hagþróun hér á landi undanfarna áratugi hefur að jafnaði Meira

finnur.is

Erlendar viðskiptafréttir