Viðskipti
| mbl
| 14.11.2011
| 14:48
Gríðarlegt tap hjá stærsta banka Ítalíu
Gengi hlutabréfa Unicredit, stærsta banka Ítalíu, hrundi í dag eftir að bankinn tilkynnti að tap á þriðja ársfjórðungi hefði numið 10,64 milljörðum evra, um 1700 milljörðum króna, á þriðja ársfjórðungi.
Stjórn bankans tilkynnti, að eigið fé bankans yrði aukið um 7,5 milljarða evra og til stæði að fækka störfum um 5200 fram til ársins 2015. Unicredit er með starfsemi víða um heim og alls starfa um 160 þúsund manns hjá bankanum. Ekki verður greiddur arður á þessu ári.
Hlutabréf bankans lækkuðu um 8% í kjölfar tilkynningar um tapið en hækkuðu síðan lítillega á ný.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















