Viðskipti
| mbl
| 16.11.2011
| 5:54
| Uppfært
13:09
Skipaður eftirmaður Steve Jobs
Apple hefur tilkynnt að Arthur Levinson taki við stjórnarformennsku í fyrirtækinu, en þeirri stöðu gegndi Steve Jobs þegar hann lést. Levinson hefur verið einn af æðstu stjórnendum fyrirtækisins frá árinu 2005.
Hlutabréf í Apple hækkuðu um 2,5% eftir að tilkynnt var um hver yrði stjórnarformaður. Tim Cook, forstjóri Apple, sagði að leiðtogahæfileikar Levinsons hefðu verið fyrirtækinu ákaflega mikilvægir.
Vangaveltur hafa verið um að stjórn fyrirtækisins komi til með að taka virkari þátt í stjórnun þess eftir að Jobs lést.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















