Erna kaupir bílaumboð
Erna Gísladóttir hefur keypt B&L en fyrirtækið var áður í eigu fjölskyldunnar. mbl.is/Kristinn Ingvarsson
Miðengi ehf., SP Fjármögnun hf. og Lýsing hf. hafa gengið frá sölu á eignarhaldsfélaginu BLIH ehf. (BLIH) til félags í eigu Ernu Gísladóttur. Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka hafði umsjón með söluferlinu fyrir hönd seljenda en Deloitte Fjármálaráðgjöf aðstoðaði Ernu.
Erna var áður forstjóri B&L en fjölskylda hennar stofnaði fyrirtækið árið 1954.
Kröfuhafar stofnuðu Eignarhaldsfélagið BLIH ehf. í febrúar 2011 til að halda utan um eignarhlut sinn í bifreiðaumboðunum Ingvari Helgasyni ehf. og Bifreiðum og landbúnaðarvélum ehf. Félögin tvö eru vel þekkt á Íslandi og saman eru þau umboðsaðilar fyrir níu bifreiðaframleiðendur - Nissan, Subaru, Hyundai, BMW, LandRover, Renault, Opel, Isuzu og Irisbus, segir í tilkynningu.



















