Viðskipti
| AFP
| 17.11.2011
| 8:06
Lítilsháttar lækkun á olíuverði
Verð á hráolíu lækkaði í viðskiptum í Asíu í morgun þar sem fjárfestar innleystu hagnað vegna mikillar hækkunar í gær. Í gær fór verð á West Texas Intermediate (WTI) hráolíu yfir 100 Bandaríkjadali tunnan og hefur ekki verið hærra í fimm mánuði.
Í New York hefur verð á WTI hráolíu til afhendingar í desember lækkað um 37 sent í dag og er 102,22 dalir tunnan.
Í Lundúnum hefur verð á Brent Norðursjávarolíu lækkað um 44 sent og er 114,44 dalir tunnan.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















