Viðskipti
| mbl
| 18.11.2011
| 14:51
800 milljóna hagnaður Eimskips
Hagnaður Eimskipafélagsins eftir skatta var um 800 milljónir króna á þriðja ársfjórðungi eftir skatta. Á sama tímabili á síðasta ári var hagnaðurinn 300 milljónir króna.
Hagnaðurinn fyrstu níu mánuði ársins eftir skatta var um 2 milljarðar króna en var 1,5 milljarðar króna á sama tímabili í fyrra.
Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskips, segir í tilkynningu að afkoma félagsins á þriðja ársfjórðungi sé umfram væntingar og flutningamagnið hafi aukist á milli ára sem sé jákvæð þróun á annars mjög erfiðum tímum. Ljóst sé hinsvegar, að umhverfið sé ennþá mjög krefjandi og mikilvægt að vera vakandi fyrir þeim ytri þáttum sem geti haft áhrif á afkomu félagsins.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















