Kemur endanlega í ljós 2014
Stefán Jóhann Stefánsson, upplýsingafulltrúi Seðlabanka Íslands, segir í samtali við mbl.is að það muni ekki koma endanlega í ljós fyrr en árið 2014 hvernig uppgjörið vegna danska bankans FIH Erhvervsbank verður.
Seðlabankinn tók bankann að veði fyrir láni sem hann veitti Kaupþingi haustið 2008 í miðju bankahruninu og eignaðist síðan bankann þegar Kaupþing gat ekki endurgreitt lánið. Danskir sparisjóðir keyptu síðan FIH Erhvervsbank haustið 2010 af Seðlabankanum og þrotabúi Kaupþings.
Eins og mbl.is fjallaði um í morgun er greint frá því í danska viðskiptablaðinu Børsen að FIH Erhvervsbank hyggist segja upp útlánum til fasteignafélaga og afla þannig fjár til að endurgreiða lán sem danska ríkið veitti bankanum. Fram kemur í fréttinni að íslenska ríkið muni þurfa að axla hluta af útlánatapinu.



















