Viðskipti
| mbl
| 22.11.2011
| 13:26
| Uppfært
14:41
Gengi krónunnar að veikjast
Gengi krónunnar hefur gefið verulega eftir það sem af er nóvembermánuði og í raun hefur það ekki verið veikara miðað við gengisvísitöluna síðan í lok september.
Gengisvísitala krónunnar er í 214,6 stigum en hún var undir 212 stigum rétt fyrir síðustu mánaðamót. Gagnvart Bandaríkjadal hefur lækkun á gengi krónunnar verið einna mest. Þannig hefur Bandaríkjadalur farið úr tæpum 113 krónur í rúmar 118 krónur á sama tímabili, sem jafngildir að gengi krónunnar hafi lækkað um nær 5% gagnvart dal á tímabilinu. Á sama tímabili hefur gengi krónunnar gagnvart breska pundinu lækkað um 2% og er pundið nú á um 185 krónur, samkvæmt Morgunkorni greiningar Íslandsbanka.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















