Hagnaður hjá Magasin
Verslunarhús Magasin í Árósum. mbl.is/GSH
Hagnaður varð af rekstri dönsku stórverslunarinnar Magasin du Nord á síðasta rekstrarári. Er það í fyrsta skipti í mörg ár sem rekstur fyrirtækisins er jákvæður.
Magasin komst í eigu íslenskra félaga árið 2004 en breska verslunarkeðjan Debenhams keypti fyrirtækið haustið 2010. Jón Björnsson var áfram forstjóri Magasin þrátt fyrir eigendaskiptin en hann tók við því starfi árið 2005.
Að sögn danska viðskiptablaðsins Børsen var 52 milljóna danskra króna hagnaður af rekstrinum á rekstrarárinu 2010/2011. Það svarar til rúmlega 1,1 milljarðs íslenskra króna. Árið á undan var 74 milljóna danskra króna tap. Veltan jókst um 7,2% milli ára og nam 2,1 milljarði danskra króna.
Blaðið segir að framboð í verslununum hafi verið breikkað og boðið upp á ódýrari vörur en einnig eru dýrari vörur það áfram. Þetta virðst viðskiptavinir kunna vel að meta og hefur sala aukist í öllum verslunum Magasin.
Blaðið hefur eftir Jóni Björnssyni að fyrirtækið hafi gerbreyst á síðustu fimm árum.



















