Viðskipti
| mbl
| 23.11.2011
| 9:08
| Uppfært
16:26
Kaupmáttur launa eykst
Vísitala kaupmáttar launa hækkaði í október um 0,4% frá fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa hækkað um 3,4%.
Launavísitala í október 2011 er 415,7 stig og hækkaði um 0,7% frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 8,9%, samkvæmt frétt Hagstofu Íslands.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















