Selja allt að 30% hlut í Högum
Fjárfestingabankasvið Arion banka mun á næstu dögum kynna almennt útboð á hlutabréfum í Högum fyrir áhugasömum fjárfestum.
Í útboðinu mun Eignabjarg, dótturfélag Arion banka, bjóða almenningi og fagfjárfestum að kaupa 20-30% af útgefnum hlutum í verslunarfyrirtækinu Högum hf. Óskað verður eftir áskriftum á verðbilinu 11-13,5 krónur á hlut. Gæti heildarsöluverðið því verið á bilinu 2,7–4,9 milljarða króna.
Eignabjarg hefur þegar selt 44% hlut til dreifðs hóps lífeyrissjóða og annarra fagfjárfesta en mun halda eftir um 20-30% eignarhlut þar til á næsta ári, fram yfir fyrirhugaða skráningu Haga í Kauphöll.
Fram kemur í tilkynningu, að markmiðið sé að útboðið geri Högum kleift að uppfylla skilyrði NASDAQ OMX Iceland um dreifingu hlutafjár og marki grunninn að dreifðu eignarhaldi á Högum. Sé bæði horft til þess að almenningur og fagfjárfestar eignist hlut í félaginu en jafnframt sé markmið seljandans að fá viðunandi verð fyrir eign sína.
Útboðið nemur 20% af útgefnum hlutum í Högum, þar af eru 12,5% ætluð tilboðsbók og 7,5% ætluð netáskrift. Seljandi kann þó að gera breytingar á þeirri skiptingu ef eftirspurn fjárfesta gefur tilefni til þess og mun þá hafa markmið útboðsins að leiðarljósi. Seljandi áskilur sér jafnframt rétt til að stækka útboðið í allt að 30% af útgefnu hlutafé.
Allir hlutir í útboðinu verða seldir á sama endanlega útboðsgengi sem verður á verðbilinu 11-13,5 krónur á hlut. Fjárfestir getur skilyrt áskrift sína við að endanlegt útboðsgengi fari ekki yfir ákveðið hámarksverð á hlut. Ef ekkert hámarksverð er tilgreint hefur fjárfestirinn samþykkt endanlegt útboðsgengi.
Áskriftartímabil útboðsins mun standa yfir 5.-8. desember 2011. Útboðið er til aðila með íslenska kennitölu sem eru fjárráða og ráða búi sínu sjálfir. Áskrift að andvirði 100 þúsund til 25 milljóna króna er skilað á sérstökum áskriftarvef heimasíðu Arion banka. Til að skila netáskrift þarf fjárfestir að eiga netbanka hjá Arion banka eða panta lykilorð á áskriftarvefnum, en það er sent í netbanka viðkomandi sem getur verið í hvaða íslenska viðskiptabanka sem er.
Áskrift að andvirði 25-500 milljóna króna er skilað í tilboðsbók hjá Hlutabréfamiðlun og Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka. Þar er gefinn kostur á að skila inn svokölluðu samsettu tilboði, þar sem heildaráskrift viðkomandi kennitölu er skipt í minni undirtilboð á mismunandi verði.
Ákvörðun um endanlegt útboðsgengi, endanlega stærð útboðsins og skiptingu seldra hluta milli tilboðsbókar og netáskriftar mun taka mið af eftirspurn í útboðinu. Niðurstaða útboðsins mun liggja fyrir í lok síðasta útboðsdags.



















